Til að gæta sanngirni, þá mega veik börn ekki mæta í skólann. Fyrr eða síðar veikjast öll börn, svo vinsamlegast hafið tilbúna viðbragðsáætlun sem þið getið gripið til þegar á þarf að halda.
- Börn sem þjást af smitandi sjúkdómi þurfa að hlíta tilmælum heimilislæknis eða heilsugæslu um það hversu lengi þau verða að vera heima
- Ef barn þitt hefur átt við veikindi að stríða síðustu 24 klukkustundirnar þá vinsamlegast ráðfærðu þig við forstöðumann eða kennara áður en þú skilur það eftir í umsjá skólans. Rétt eins og við þurfa börn að vera heilbrigð til að njóta dagsins að heiman
- Vinsamlegast láttu skólann vita ef barn þitt hefur haft einhvern smitandi sjúkdóm þannig að starfsmenn skólans geti frætt aðra foreldra um einkenni sjúkdómsins.
- Ef forstöðumaður eða kennari barnsins meta það svo að barnið sé ekki nógu heilbrigt til að vera í skólanum, þá verður haft samband við þig og þú beðin um að sækja það.
- Ef barnið þitt þarf á neyðaraðstoð að halda verður haft samband við þig og sjúkrabíl pantaður
Við biðjum þig vinsamlegst um að gæta þess að hringja í okkur eða senda tölvupóst ef barn þitt verður fjarverandi vegna veikinda.
Sími: 562 8533, eða tölvupóst: saelukot@gmail.com
Það er bráðnauðsynlegt að skólinn sé meðvitaður um sérþarfir, ofnæmi eða ef heilsufar er ekki í lagi fyrir innritun. Það þarf að fylla út eyðublöð um ástand barns þíns og aðgerðaáætlanir verða þróaðar í samráði við fjölskylduna og hengdar upp á viðeigandi stað. Öllum starfsmönnum verður gerð grein fyrir ástandinu og aðgerðaráætlun.
Ef barn þitt þarfnast lyfja á meðan það er í skólanum, þá þarftu að fylla daglega út blað varðandi lyfjameðferðina á meðan á henni stendur. Lyf og eyðublað þarf að afhenda kennara til varðveislu á öruggum stað. Af öryggisástæðum má ekki skilja lyf eftir í tösku barnsins
Ef barn þitt þarfnast lyfja á meðan það er í skólanum, þá þarftu að fylla daglega út blað varðandi lyfjameðferðina á meðan á henni stendur. Lyf og eyðublað þarf að afhenda kennara til varðveislu á öruggum stað. Af öryggisástæðum má ekki skilja lyf eftir í tösku barnsins
Við höfum yfir að ráða ýmsum smáskammtalækningum (homeopathic remedies) vegna smávægilega daglegra árekstra, meiðsla eða uppnáms. Ef eitthvert ykkar hefur eitthvað á móti því vinsamlegast hafið samband við Leikskólastjóri.
Við erum alltaf tilbúintil að vinna með foreldrum við að skipuleggja áætlanir fyrir frekari þarfir. Leikskólinn leitast við að samlaga börn með sérþarfir inn í námið okkar. Í kjölfar viðtals og samveru með foreldri og barni mun forstöðumaður meta þarfir barnsins og hvernig skólinn getur sem best komið til móts við það.
Kennararnir munu veita skyndihjálparmeðferð og upplýsa foreldra um atvikið.
Ef barn lendir í alvarlegu slysi skal veita fyrstu hjálp á meðan haft er samband við foreldra. Ef ljóst er að meiðslin eru alvarleg verður barnið flutt á sjúkrahús til bráðameðferðar. Öll meiriháttar meiðsl eru skráð á meiðslaskrá og geymd með klemmuspjaldi hverrar kennslustofu.