Yfirleitt gengur aðlögun barna fljótt og vel. Þarfir barna eru samt sem áður ólíkar og þau taka sér mislangan tíma í að aðlagast nýjum aðstæðum. Eftirfarandi áætlun er aðeins viðmið. Aðlögunin sjálf getur tekið styttri eða lengri tíma, allt fer það eftir barninu sjálfu.

Dagur 1

Barnið kemur í heimsókn með foreldrum sínum í 1 klst milli kl. 9:00-10:00

Dagur 2

Barnið er í leikskólanum í 2 klst milli kl. 9:00-10:00. Foreldri er með barninu allan tímann.

Dagur 3

Barnið er í leikskólanum í 2 klst milli kl. 9:00-10:00. Foreldri bregður sér frá í stutta stund ef barnið er nógu öruggt.

Dagur 4

Barnið mætur kl. 9 og er fram yfir hádegismat, ca. 3 klst. milli kl. 9:00-12:00. Foreldri bregður sér frá í stutta stund á meðan á heimsókn stendur en borðar hádegismat með barninu

Dagur 5

Barnið mætur kl. 9 og er fram yfir hvíld, ca. 5 klst. milli kl. 9:00-14:00. Foreldri kveður barnið eftir morgunhring kl. 10 og foreldri sækir þegar barnið vaknar.

Dagur 6

Barnið mætur kl. 9 og er fram yfir síðdegishressingu, milli kl. 9:00-15:30. Foreldri kveður barnið þegar komið er í leikskólann og sækir það eftir síðdegishressingu.

Dagur 7

Barnið dvelur allan sinn vistunartíma í Sælukoti (fer eftir dvalarsamningi).

Mikilvægt er að láta barnið vita og kveðja það áður en að foreldri fer. Kennarinn tekur síðan við og veitir barninu öryggi með návist sinni og umönnun.

Foreldrum er alltaf velkomið að hringja og athuga með líðan barnsins síns en einnig sendir Sælukot sms til að láta vita hvernig gengur. Kennari hringir í foreldri ef hann telur ástæðu til að það komi og verði með barninu.

Okkur í Sælukoti er umhgað um að barninu þínu líði vel og fái það besta sem kostur er á.