Viðmið vegna lágmarksmönnunar á leikskólanum Sælukoti

Markmið með viðmiðunum er að tryggja öryggi barna og starfsumhverfi í leikskólanum. Ef upp koma aðstæður í leikskólum að fjarvera starfsmanna er það mikil að stjórnendur telja öryggi barna ekki tryggt og ábyrgð starfsmanna of mikla þarf að grípa til eftirfarandi aðgerða:

Ástæður:                                                                                                                                                                         
  Á ákveðnum tímum geta fjarvistir starfsmanna orðið verulegar og geta ástæður fjarverunnar verið, til dæmis vegna:

             · Veikinda starfsmanna.

             · Veikinda fjölskyldumeðlima.

             · Vegna lokunar leik- og grunnskóla vegna faraldurs.

Aðgerðir:

Ef senda verður ákveðinn fjölda barna heim úr leikskólanum þá miðast fjöldinn við þau barngildi sem Sælukot hefur ákveðið á hvern starfsmann. Hver starfsmaður ber ábyrgð á ákveðnum fjölda barna. Fjöldi barna sem sendur er heim ræðst af fjölda þeirra starfsmanna sem eru fjarverandi og aldri barnanna. Viðmið um fjölda barna á hvern starfsmann eru:

                · 1-2 ára  – 4 börn.

                · 2-3  ára – 5 börn.

                · 3-4 ára –  6 börn.

                · 4-5 ára –  7 börn.

                · 5-6 ára –  8 börn.

Samskipti við foreldra:

Hringt verður í þá foreldra sem þurfa að sækja börn sín. Ef ekki næst í foreldra þá verða send skilaboð bæði með sms og tölvupósti.