1. Leikskólastjórar eða staðgengill kanna upptök elds og hafa samband við 112.
  2. Hópstjórar undirbúa rýmingu skólans og taka með nafnalista. Börnin fara í skó
    og hópstjórar taka yfirhafnir ef aðstæður leyfa, athugið að hópstjórar bera
    ábyrgð á rýmingu sinnar stofu.
    Börn yfirgefa ekki kennslustofu fyrr en hópstjóri hefur kannað hvort
    útgönguleiðin er greið. Ætíð skal velja þann neyðarútgang sem er næstur.
  3. Sá sem síðastur fer út úr hverri stofu skal loka dyrum á eftir sér til að draga
    úr reykflæði um bygginguna.
  4. Söfnunarsvæði. Þegar komið er á söfnunarsvæðið hefur hver hópur sitt
    svæði. Hópstjórar fara yfir nafnalista og aðgæta hvort allir hafi komist út. Ef
    einhvern vantar tilkynna skólastjórar eða staðgengill það.
  5. Leikskólastjórar eða staðgengill fara á milli hópa og fá upplýsingar um hvort
    einhver hafi ekki skilað sér með hópunum út.
  6. Slökkvilið kemur á staðinn. Leikskólastjórar eða staðgengill gefa stjórnanda
    slökkviliðs upplýsingar um hvort einhver hafi orðið eftir inni.
  7. Allir í öruggt skjól. Farið með börn og starfsfólk í nærliggjandi hús.
  8. Allir taka þátt. Virkja skal sem flesta starfsmenn skólans í hlutverk, t. d. að
    halda opnum dyrum og loka á eftir.
  9. Láta foreldra vita. Hafa samband við foreldra/forráðamenn barna til að
    tryggja að upplýsingar um atburð berist eftir réttum leiðum.
  10. Sálrænn stuðningur. Leikskólastjórar meta hvort leita þarf eftir aðstoð
    utanaðkomandi til að veita börnum, starfsfólki og/eða foreldrum sálrænan
    stuðning eða áfallahjálp. Slökkvilið getur þá haft milligöngu um slíka aðstoð.