Menntamálaráðuneytið gefur út Aðalnámskrá leikskóla. Hún er fagleg stefnumörkun og lýsir
sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf. Hún inniheldur
hugmyndafræði leikskóla, markmið og leiðir. Aðalnámskrá er ákveðinn rammi um
leikskólastarfið og undirstaða frekari skólanámskrárgerðar.
Lög um leikskóla nr.90/2008,2.grein
„Í leikskólum skal velferð og hagur barna hafður að leiðarljósi í öllu starfi. Veita skal börnum
umönnun og menntun, búa þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms- og
leikskilyrði. Stuðla skal að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi þar sem börn njóta
fjölbreyttra uppeldiskosta. Starfshættir leikskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika,
jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi, virðingu fyrir manngildi og
arfleifð íslenskrar menningar.

Meginmarkmið uppeldis og kennslu í leikskóla skulu vera:

a. að fylgjast með og efla alhliða þroska barna í náinni samvinnu við foreldra,
b. að veita skipulega málörvun og stuðla að eðlilegri færni í íslensku,
c. að hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins
svo að börnin fái notið bernsku sinnar,
d. að stuðla að víðsýni barna og efla siðferðisvitund þeirra,
e. að leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í
lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun,
f. að rækta hæfileika barna til tjáningar og sköpunar í þeim tilgangi m.a. að styrkja
sjálfsmynd þeirra, heilbrigðisvitund, öryggi og hæfni til mannlegra samskipta.”
Grunnþættir menntunar
Sú menntastefna sem birt er í aðalnámskrá leikskóla er reist á sex grunnþáttum menntunar
sem eru leiðarsljós við námskrárgerðina.

  • Læsi
  • Sjálfbærni
  • Heilbrigði og velferð
  • Lýðræði og mannréttindi
  • Jafnrétti
  • Sköpun

Áætlun leikskólans Sælukots er að starfa eftir ofangreindum lögum og reglugerðum, jafnhliða
kennslu í Ný-húmanískum fræðum.
Við mat á námi og færni barnanna er stuðst við „Smábarnalistann“ þroskalista handa
mæðrum 15 – 38 mánaða barna. Fylgst er með þroska, námi og velferð barnanna.

Auk þess er lögð áhersla á:
alhliða þroska,
sjálfstæði,
áhugasvið,
þátttöku í leik úti og inni,
félagsfærni og samkennd,
frumkvæði og sköpunarkraft,
tjáningu og samskipti.
Sérstakt eyðublað er notað til að safna upplýsingum á sem eru síðan notaðar í
foreldraviðtölum.